18 Júlí 2013 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í norðurátt, að Skeiðarvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.