5 Febrúar 2015 16:21

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, á móts við Langholtsveg 166. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega margir ökumenn, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.