16 Febrúar 2015 15:35

Brot 2 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í norðurátt, á móts við Langholtsveg 155. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því óku örfáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Hinir brotlegu óku á 41 og 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi, en mikil hálka var á akbrautinni þegar á henni stóð og gekk á með dimmum éljum, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.