4 Júní 2015 17:36

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, á móts við Langholtsveg 160. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.