15 Júní 2009 12:00

Átta voru staðnir að hraðakstri á Langholtsvegi í Reykjavík mánudaginn 8. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar 8. júní eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 8 ökumanna mynduð á Langholtsvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, á milli Drekavogs og Skeiðarvogs. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 189 ökutæki þessa akstursleið og því óku 4% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Langholtsvegi en þá óku 5% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (188 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var rúmlega 62 km/klst.