21 Júní 2011 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Laugalæk í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið  suður Laugalæk við Hrísateig. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og óku allmargir ökumenn, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Haustið 2009 var umferð vöktuð á sama stað en þá reyndust brotin heldur færri eða 21%. Meðalhraði var hins vegar sá sami og nú.