8 Júní 2022 09:15

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Laugalæk í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugalæk í vesturátt, að Rauðalæk. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn,  eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 42.

Vöktun lögreglunnar á Laugalæk er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.