3 September 2009 12:00

Tuttugu og sjö voru staðnir að hraðakstri á Laugalæk í Reykjavík í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 27 ökumanna mynduð á Laugalæk en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, við Hrísateig. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 130 ökutæki þessa akstursleið og því óku 21% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Laugalæk er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu en börn í hverfinu fara þarna um á leið sinni í Laugarnesskóla.