27 Apríl 2022 16:34

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Laugarásvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarásveg í suðurátt, á móts við Laugarásveg 30. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 68%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Laugarásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var  á meðan hraðamælingunni stóð.