16 Desember 2021 09:07

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Laugarásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarásveg í suðurátt, á móts við Laugarásveg 30. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Laugarásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru  á meðan hraðamælingunni stóð.