10 Október 2016 15:39

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Laugarnesvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarnesveg í norðurátt, á móts við Laugarnesveg 64. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 66 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52

Vöktun lögreglunnar á Laugarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.