13 Apríl 2022 11:53

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Laugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugaveg í austurátt, á móts við Mjölnisholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Laugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.