5 Júní 2015 13:29

Brot 61 ökumanns var myndað á Laugavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugaveg í vesturátt, á móts við Laugaveg 170. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 443 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Ellefu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Laugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.