26 Maí 2014 12:00

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Meistaravöllum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Meistaravelli í norðurátt, á móts við Meistaravelli 9. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Meistaravöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.