8 Maí 2015 17:11

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Meistaravöllum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Meistaravelli í norðurátt, á móts við Meistaravelli 9. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Meistaravöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.