9 Maí 2017 10:44

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Meistaravöllum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Meistaravelli í norðurátt, á móts við Meistaravelli 9. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Meistaravöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.