8 Maí 2018 08:51

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Meistaravöllum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Meistaravelli í norðurátt, á móts við Meistaravelli 9. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Meistaravöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.