22 Ágúst 2013 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Meistaravöllum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Meistaravelli í norðurátt, við Flyðrugranda. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Meistaravöllum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.