22 Maí 2009 12:00

Hundrað tuttugu og níu ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Miklubraut á þriðjudagskvöld en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudagskvöld eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 129 ökumanna mynduð á Miklubraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Rauðarárstíg. Á einni klukkustund, frá kl. 21.30 til 22.30, fóru 679 ökutæki þessa akstursleið og því óku 19% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Nítján óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.