27 Júlí 2017 17:00

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, að Reykjanesbraut/Sæbraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 1.381 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.