25 Júní 2018 17:24

Brot 546 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 21. júní til mánudagsins 25. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á fjórum dögum fóru 24.228 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.