29 Júní 2018 15:28

Brot 171 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 27. júní til föstudagsins 29. júní. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á tveimur dögum fóru 12.067 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.