2 Júlí 2018 16:39

Brot 390 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 29. júní til mánudagsins 2. júlí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á þremur dögum fóru 18.986 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.