15 Ágúst 2018 11:07

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 13. ágúst til þriðjudagsins 14. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á einum sólarhring fóru 4.072 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.