23 Ágúst 2018 12:40

Brot 180 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 14. ágúst til fimmtudagsins 23. ágúst. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á tæplega níu dögum fóru 35.424 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.