29 Apríl 2020 21:38

Brot 51 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Rauðarárstíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 731 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.