23 Nóvember 2020 09:18

Brot 52 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 18. nóvember til föstudagsins 20. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á tveimur sólarhringum fóru 6.054 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 109. Sex ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.