24 Nóvember 2020 11:45

Brot 95 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 20. nóvember til mánudagsins 23. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á þremur sólarhringum fóru 9.629 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.