25 Nóvember 2020 16:19

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 23. nóvember til miðvikudagsins 25. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á tæplega tveimur sólarhringum fóru 6.778 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.