9 Desember 2020 14:19

Brot 141 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá föstudeginum 4. desember til miðvikudagsins 9. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á fimm sólarhringum fóru 16.851 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.