8 Apríl 2011 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, að Reykjahlíð. Á þremur stundarfjórðungum, fyrir hádegi, fóru 694 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.