29 Desember 2020 13:46

Brot 112 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 23. desember til þriðjudagsins 29. desember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á sex sólarhringum fóru 17.095 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 96. Fjórum ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.