14 Apríl 2021 12:11

Brot 108 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 12. apríl til miðvikudagsins 14. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á tveimur sólarhringum fóru 8.752 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.