19 Febrúar 2014 12:00

Brot 152 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, að Ártúnsbrekku. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1511 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Nítján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 121.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.