23 Apríl 2021 15:15

Brot 166 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 19. apríl til föstudagsins 23. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á fjórum sólarhringum fóru 11.534 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.