30 Apríl 2021 10:05

Brot 136 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 26. apríl til fimmtudagsins 29. apríl. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Á þremur sólarhringum fóru 10.052 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.