28 Október 2021 17:45

Brot 21 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á móts við Rauðagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.757 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.