3 Nóvember 2022 11:17

Brot 101 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 2. nóvember til fimmtudagsins 3. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á einum sólarhring fóru  9.085 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100. Engu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.