2 Nóvember 2022 10:41

Brot 213 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 31. október til miðvikudagsins 2. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á tveimur sólarhringum fóru  21.135 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 124. Engu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.