7 Nóvember 2022 12:05

Brot 375 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 3. nóvember til mánudagsins 7. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á fjórum sólarhringum fóru  31.550 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 119. Engu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.