11 Nóvember 2022 10:30

Brot 375 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá mánudeginum 7. nóvember til fimmtudagsins 10. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á þremur sólarhringum fóru  41.838 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108. Engu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.