9 Apríl 2015 14:33

Brot 63 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Miklubraut 22. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 943 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 94.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.