15 Desember 2015 13:05

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Miklubraut 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 948 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fjórir óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.