3 Desember 2014 15:10

Brot 51 ökumanns var myndað á Miklubraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í austurátt, á móts við Miklubraut 22. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 836 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83. 

Vöktun lögreglunnar á Miklubraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.