10 Desember 2020 09:43

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í vesturátt, á móts við Vallengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 98 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.