12 Febrúar 2021 09:35

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, við Starengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 116 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.