31 Maí 2021 10:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt,  við Starengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.