1 September 2021 13:55

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í vesturátt, á móts við Vallengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 140 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.