30 September 2022 09:09

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, að Starengi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.