8 Október 2008 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Grafarvogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í austurátt, við Vallengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64. 

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi, en í nágrenni hans er Engjaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.